Allir vita að bestu leyndarmálin eru geymd í leynifélögum. Þess vegna stofna Pétur og Stefanía Skrímslavinafélagið. Þegar þau finna dularfullt og hættulegt svart duft í skólanum sínum fara leikar að æsast.
Tómas Zoëga og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir unnu samkeppni Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar um jóladagatal ársins 2020 með sögunni Nornin í eldhúsinu. Nú hafa þau skrifað aðra fyndna og fjöruga sögu, Skrímslavinafélagið, sem á örugglega eftir að kitla hláturtaugar lesenda á aldrinum 6–10 ára.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 1 klukkustund og 6 mínútur að lengd. Valgerður Sigurðardóttir les.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun