Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Aristóteles

Í þessu riti setur Aristóteles fram siðfræðikenningu sem á ekki minna erindi við samtíma okkar en samtíma hans. Kenningin felur meira í sér en greiningu á mannlegum samskiptum. Hún er einnig og ekki síður krafa um margvíslega umræðu um flestar hliðar mannlegrar breytni.

Hún gaumgæfir það sem býr að baki breytni, mun á viljandi athöfnum og óviljandi, rökum fyrir athöfnum og niðurstöðum sem leiða til breytni, hvað sé ánægja, hvernig skýra megi breyskleika, siðrænar dygðir og vitrænar, hófsemi, hugrekki, veglyndi og réttlæti.