Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Rasmus Kristian Rask (1787-1832) var einstakur hæfileikamaður og eldsál. Þekkt víða um lönd eru tungumálakunnátta hans og framlag til samanburðarmálfræði en hann var auk þess sérstakur áhugamaður um íslenska tungu og hafði mikil áhrif á íslenska málhreinsun á 19. öld og þróun tungunnar í átt til málstaðals 20. aldar.

Rask var frumkvöðullinn á bak við Hið íslenska bókmenntafélag sem enn stendur í blóma. En þrátt fyrir þessa miklu og varanlegu arfleifð var hann fjarri því að vera óumdeildur á sínum tíma og í þessu riti er meðal annars lýst ýmsum átökum og erfiði í lífi hans.

4.150 kr.
Afhending