Munaðarlausa stúlkan er eitt af þessum gömlu og góðu rammíslensku ævintýrum þar sem góðsemi og velvild er umbunað í lokin. Fallegur boðskapur sem á alltaf erindi til okkar.
Sigurgeir Jónsson, kennari til margra ára, endursagði söguna en hann hefur tekið saman allnokkrar bækur um félagslíf, mannlíf, hætti og siðvenjur í Vestmannaeyjum.
Sunna Einarsdóttir sá um myndskreytingu en hún er ung Eyjastúlka sem hefur getið sér gott orð fyrir myndir sínar sem hún hefur sýnt á veitingastað foreldra sinna, Einsa kalda.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun