Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Stefán Snævarr

Hugmyndin að bókinni Kredda í kreppu – Frjálshyggjan og móteitrið við henni varð til á andvökunóttum í október 2008 þótt mikið af efni hennar eigi sér eldri rætur. Hún var skrifuð með hjartablóði höfundar til að vara lesendur við hugmyndafræði sem átti ólítinn þátt í hruni Íslands og kreppu heimsins.

Höfundur gerir gagnrýna úttekt bæði á frjálshyggju og vinstrisósíalisma og kynnir hugmyndir sínar um miðjuna hörðu og hentistefnuna mjúku. Skilningur frjálshyggjumanna á frelsishugtakinu þykir honum takmarkaður, þeir eru óþarflega gagnrýnir á lýðræðið og helst til trúaðir á kreddur hagfræðinga en skilja ekki að kenningar hagfræðinnar eru illprófanlegar.

Frjálshyggjumenn eru einatt miklir formúlutrúarmenn en Stefán varar við formúluhugsun, hvort sem hún er til vinstri eða hægri. Hentistefna sú sem hann heldur á lofti á einmitt að vera móteitur við formúlutrú og ofstæki.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun