Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir

Jakobína Sigurðardóttir rithöfundur og skáld ólst upp í sárri fátækt á Hornströndum. Fjölskyldan var stór og samheldin, guðsorð og bókmenntir haldreipið í harðri lífsbaráttu. Ung mátti hún gefa menntadrauma sína upp á bátinn og oft varð lítið rúm til þess að sinna skáldagyðjunni í amstri og andstreymi hversdagsins. Sjálf var hún alla tíð fáorð um lífshlaup sitt og lét farga bæði bréfum sínum og dagbókum.

Jakobína – saga skálds og konu veitir dýrmæta innsýn í líf Jakobínu og varpar nýju ljósi á verk hennar. Það er dóttir skáldsins sem segir frá og fléttar listilega saman endurminningar, vandaða heimildavinnu og ögn af skáldskap – því að Bína mætir sjálf í kaffi og hefur uppi ýmsar meiningar um þessa ævisögu sína.

Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir sagnfræðingur er fædd í Garði í Mývatnssveit 1956. Hún hefur sinnt margvíslegum ritstörfum gegnum tíðina, en síðast kom út eftir hana femíníska sjálfsævisagan Alla mína stelpuspilatíð.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun