Höfundur: Sigrún Helgadóttir
Þingvellir – Þjóðgarður og heimsminjar er alhliða ferðahandbók líkt og ofangreindar fyrirsagnir bera með sér.
Hér er fjallað um sögu staðarins, þinghald og búskap, mótun landsins og náttúrufar.
Áhersla er lögð á að opna þjóðgarðinn fyrir gönguglöðum ferðalöngum með vönduðum leiðarlýsingum, auk þess sem sérstakt gönguleiðakort fylgir bókinni.