Flokkar:
Höfundur: Guðbergur Bergsson
Þetta er ný og mikið endurskoðuð kiljuútgáfa á skáldsögu Guðbergs sem kom fyrst út árið 1982 og er með fyndnustu verkum þessa sífrjóa höfundar, en með alvarlegum undirtón. Hún gerist í Reykjavík. Aðalpersónan er fráskilinn sálfræðingur sem stendur í sífelldum flutningum milli forstofuherbergja sem leigð eru út af fráskildum eiginkonum annarra manna. Hugarástand mannsins er í rúst, konan hans fyrrverandi er upptendruð af kvenfrelsisboðskap og leyfir honum ekki að umgangast dæturnar tvær. Sagan lýsir einum sólarhring af eirðarlausu rangli þessa manns um borgina.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun