Björgvin Halldórsson vill ekki æfa Hamlet. SúEllen spilar lag fyrir Sjálfstæðismenn. Guðmundi Svafarssyni í Ljótu hálfvitunum líkar ekki súrmjólkin í Ólafsvík. Pétur Kristjánsson rótar eins og óður maður. Allt hverfur í reyk hjá Greifunum. Óskar Álftagerðisbróðir kannar lagerstöðuna á elliheimili.
Skriðjöklarnir komast óvænt í úrslit í hljómsveitakeppni. Rúnni Júll „tekur æði“. Rúnar Georgs kveikir í Havana-vindli. Jón Gnarr spilar á Fner. Vopnfirska trommarann, Jón Sigurjónsson, langar í Bjarna frá Vogi. Trúbadorinn Ingvar Valgeirsson var með „líf í krukku“. Árni Johnsen er með rándýran gítar. Óðinn Valdimarsson syngur fyrir móður sína. Ingimar Eydal á von á Bing Crosby.
Raggi Bjarna vill eitthvað smærra og hver skyldi svo sjá um trommuleikinn I Can´t Walk Away – án þess að hafa hugmynd um það?
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun