Þegar Chas Featherby, aldraður sjómaður í Hull, deyr, bíður sonar hans á Íslandi, Arnar Featherby, óvæntur arfur: tæplega tvö hundruð skópör. Um svipað leyti fá Örn og félagi hans Jón, sem lærði kvikmyndaleikstjórn í Prag en starfar sem bókavörður í Hafnarfirði, langþráð tækifæri upp í hendurnar: vilyrði fyrir styrk frá gömlum skólafélaga, lyfsalanum Alfreð Leó, til að framleiða leikna bíómynd.
Til að ná í föðurarf Arnar ákveða þeir félagar að ferðast saman til Englands – sjóleiðina – og í farangrinum eru drög að kvikmyndahandriti. Atburðarásin sem þá fer af stað er skráð af Jenny Alexson, fyrrum mágkonu Jóns.
Bragi kemur á óvart með hverri bók, enda er stíll hans og frásagnarháttur engu öðru líkur. Hér er á ferðinni kostuleg lýsing á brokkgengu lífi listamanna og ástandi þjóðar.
Bók þessi er óbeint framhald af síðustu skáldsögu hans, Sendiherranum, sem var valin besta skáldsagan árið 2006 af starfsfólki bókaverslana, tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson hlaut einnig tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2010.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun