Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Góð og gild húsráð erfðust fyrrum á milli kynslóða en á seinni tíð hafa þau allmörg orðið glatkistunni að bráð. Í þessari bók er að finna 1000 gömul húsráð sem allmörg ættu enn að geta nýst við hvers kyns vandamálum sem upp kunna að koma innan veggja heimilisins.

Er hiksti þig t.d. lifandi að drepa eða þá fló á skinni? Eru varirnar sprungnar og nefið rautt? Þarftu að losna við óþef úr íbúð og blett úr flík? Eru skórnir of þröngir eða hanskarnir skjóttir? Eru eggin fúl eða kaffið svikið? Þarftu að fá páfagaukinn til að tala eða fæla burtu flugur og mýs?

Svör við öllu þessu og svo miklu fleiru finnur þú í þessari gagnmerku bók sem kom fyrst út á Íslandi fyrir ríflega 60 árum og hefur verið með öllu ófáanleg síðan þá. Nýja útgáfan er ríkulega myndskreytt.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun