Geimverur – Leitin að lífi í geimnum fjallar um eina stærstu spurningu vísindanna: Erum við ein í alheiminum eða er líf á öðrum hnöttum? Hvers vegna höfum við ekki enn sannað tilvist geimvera? Hafa þær kannski nú þegar heimsótt jarðarbúa? Hvernig gætu geimverur litið út? Höfum við reynt að senda skilaboð til þeirra?
Í bókinni er sagt frá plánetum og tunglum í sólkerfinu okkar þar sem líf gæti hugsanlega leynst eða þrifist og þeirri miklu byltingu sem orðið hefur á undanförnum árum eftir að lífvænlegar fjarreikistjörnur komu í leitirnar. Við færumst sífellt nær því að finna svörin við stóru spurningunum.
Sævar Helgi Bragason er landsþekktur vísindafræðari. Hann er ritstjóri Stjörnufræðivefsins, kennir menntaskólanemum að meta stjörnur og plánetur, ferðast með Háskóla Íslands um land allt og kennir grunnskólakrökkum og fræðir áhorfendur og hlustendur KrakkaRÚV um allt milli himins og jarðar. Sævar er höfundur hinnar feikivinsælu bókar Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna þar sem hann sendi þjóðina út að horfa til himins.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun