Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Eva Björg Sigurðardóttir, Ana K. Quintero

Doppa er forvitið og dreymið unglingslamb sem býr með mæðrum sínum á sveitabæ í Miðfirði. Þó að lífið þar sé ljúft og fjölskylda hennar samheldin þráir hún fátt meira en að fara á stjá og skoða heiminn. Ævintýralegar sögur Lóu, mömmu hennar, slá alltaf í gegn en duga þó ekki til þess að slökkva á þránni sem býr innra með henni.

Flökkukindin er fyrsta bókin í barnabókaseríu sem fjallar um ævintýri kindarinnar Doppu. Bækurnar henta börnum frá fjögurra ára aldri, en hægt er að einfalda mál þeirra og styðja sig við myndirnar ef lesið er fyrir yngri börn.