Tíu ára gamall drengur hverfur sporlaust úr skólanum. Af Instagram-reikningi hans að dæma hefur hann verið heltekinn af að finna mynstur sem minna á andlit í hversdagslegum hlutum. Ein myndanna vekur sérstaka athygli rannsakenda málsins: Hrörlegar hlöðudyr sem líkjast glottandi ásjónu.
Vísbendingarnar hrannast upp en virðast benda hver í sína áttina. Uppgjafahermaður finnst látinn, leynileg skilaboð eru uppgötvuð í herbergi drengsins og svo er eins og móðir hans hafi eitthvað að fela. Hvar eru þessar hlöðudyr? Og hver er Eplamaðurinn sem krakkarnir tala um?
Eplamaðurinn er ískyggileg og æsispennandi saga eftir danska blaðamanninn og sagnfræð-inginn Anne Mette Hancock sem sló rækilega í gegn með fyrstu glæpasögu sinni, Líkblóminu. Hér mæta þau aftur til leiks, blaðakonan Heloise Kaldan og Erik Schäfer lögreglumaður, gallhart tvíeyki sem gefst ekki upp fyrr en sannleikurinn kemur í ljós.
Nanna B. Þórsdóttir þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 43 mínútur að lengd. Sara Dögg Ásgeirsdóttir les.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun