Your Address
Choose Delivery Method
Höfundur: Jónas Reynir Gunnarsson

Ég ímynda mér að ég þjóti á mótorhjóli í gegnum nóttina. Að ég keyri út úr bænum og láti mig hverfa inn í myrkrið. Reyndar er ég svo gott sem horfinn. Þess vegna fór ég til Spánar, til að hverfa.

Það hefur rignt linnulaust í marga daga þegar skógurinn rennur niður hlíðina og setur allt af stað í lífi landeigandans og fjölskylduföðurins Magnúsar. Litlu seinna koma sprengjurnar í ljós.

Dauði skógar er launfyndin og margræð saga um það þegar hversdagurinn fer á hvolf og dauðinn ber að dyrum. Fyrri skáldsögur Jónasar Reynis Gunnarssonar, Millilending og Krossfiskar, vöktu mikla athygli og var sú fyrri tilnefnd til Menningarverðlauna DV. Fyrir ljóðabókina Stór olíuskip hlaut hann Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Maístjörnuna fyrir Þvottadag.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 57 mínútur að lengd. Stefán Hallur Stefánsson les.

Hér má hlusta á fyrsta kafla hljóðbókarinnar:

4.040 kr.
Delivery Info