Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Birgitta Jónsdóttir

Bókin er gefin út sem skáldsaga, þrátt fyrir að æviskrifin séu áberandi þáttur. Ljósmyndir og myndefni leika stóran þátt í verkinu og skapa enn annan áhugaverða flötinn á þessari samþáttun minninga og skáldskapar, en ekki er betur hægt að sjá en að myndirnar sýni höfund á unga aldri.

Sjálf hönnun bókarinnar undirstrikar svo enn viðfangsefnið, en í útliti minnir bókin á lúna dagbók og sumar síðurnar eru línustrikaðar, auk þess sem handskrifuð textabrot birtast meðal teikninga og skyssa. Þessi áferð öll og það hvernig hún styður við innihaldið er augljóslega framhald af vinnu Birgittu með netið sem miðil sem hún yfirfærir á bókina, það er, ekki netið sjálft, heldur áhersluna á miðilinn, það hvernig netið myndar ramma utanum ljóðin. Á sama hátt er bókin öll einskonar bókverk, allt frá ytri hönnun til framsetningar textanna til viðfangsefnis sögunnar.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun