Andrea, Elsa Lóa, Tandri og Stjúri komast heldur betur í feitt þegar þau sjá auglýsta hljómsveitakeppni í Hörpu. Sigurvegarinn á möguleika á að fylgja sjálfum Justin Bieber á alheimstúr.
Vandamálið er að krakkarnir í hljómsveitinni Botnrössu eru bara 12 og 13 ára – og svo er mamma Andreu í hrikalegu veseni. Þau fjögur eru staðráðin í að semja algjöran hittara fyrir keppnina – og bjarga mömmu Andreu.
Bieber og Botnrassa er stórskemmtileg og hörkuspennandi saga um fríska krakka sem láta ekki smáatriðin vefjast fyrir sér!
Haraldur F. Gíslason stekkur hér fram sem frábær barna- og unglingabókahöfundur, en hann er þekktari sem trommuleikari í Botnleðju og gítarleikari og söngvari í hljómsveitinni Pollapönk.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun