Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: L. M. Montgomery

Anna, Gilbert og börn þeirra hafa komið sér notalega fyrir í húsi sem þau kalla Arinhæð rétt við þorpið Maríuvog. Börnin eru fimm í upphafi sögunnar en fer fjölgandi. Það er mikið að gera á stóru heimili og það gengur á ýmsu eftir því sem börnin vaxa, þroskast og kynnast heiminum. Erfiðir ættingjar og draugar fortíðar reyna einnig á hjónaband Önnu og Gilberts. Í þessari bók er sagt frá ævintýrum fjölskyldumeðlimanna, barna sem fullorðinna, af glettni og innsæi eins og Lucy Maud Montgomery einni var lagið.

Anna á Arinhæð er sjötta bókin í bókaflokknum um Önnu í Grænuhlíð eftir Lucy Maud Montgomery og kemur nú út á íslensku í fyrsta sinn. Sigríður Lára Sigurjónsdóttir þýðir.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun