ferð í fötin fyrir þriðja vekjara
stoppar eftir fimmta kaffibolla
sjöunda bjórsturtar þig
alltaf
þegar þú byrjar að forðast þaðog færð þér göngutúr
býrð þér til reglur
reglur
til að fylla dagatöl
brosköllummánuðirnir
brekka
til að rúlla niður
Brynjar lýsir heiminum í einföldum setningum. Án kaldhæðni eða stæla sýnir hann okkur sitt skrítna, tæra sjónarhorn. Sjónarhorn sem er jú kirfilega niðurnjörvað inn í hversdagsleika Laugardalsbúa en fjarrænt og súrrealískt á sama tíma. Útkoman er sú að alvarlegustu málefni verða hjóm, tölvupóstar breytast í merka viðburði, suð í ísskápum verður að skynbrenglandi katastrófum og hlutirnir riðlast úr samhengi og endurraða sér svo aftur á skynsamlegri og eðlilegri hátt -að því er virðist alveg óvart.
– Almar Steinn Atlason, myndlistamaður.