Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Páll Ásgeir Ásgeirsson

171 Ísland: Áfangastaðir í alfaraleið er stóra systir hinna gríðarvinsælu 101 Ísland og 155 Ísland, verulega endurskoðuð og aukin. Þetta er stórskemmtileg, fróðleg og gagnleg ferðahandbók.

Vísað er til vegar á 171 stað í alfaraleið. Ýmist er lesandinn leiddur á staði sem fram að þessu hafa verið á fárra vitorði eða sýndar eru nýjar hliðar á vinsælum áfangastöðum – meðal annars eru laugum og baðstöðum nú gerð sérstök skil. Bókin opnar ferðalöngum nýja sýn á náttúru landsins og furður hennar og bregður ljósi á þjóðarsöguna og sérkenni þjóðarsálarinnar.

Páll Ásgeir Ásgeirsson er landskunnur fararstjóri, útivistarmaður og ferðabóka[1]höfundur. Eftir hann eru m.a. bækurnar Hálendishandbókin, Gönguleiðir, Útivistarbókin, Bíll og bakpoki og Hornstrandir.

5.650 kr.
Afhending