Höfundur Guðrún Helgadóttir
Í agnarlitlu húsi í agnarlitlum bæ býr stór fjölskylda: sjómaður og kona hans, sjö fjörugir krakkar, guðhrædd amma og síblótandi afi. Það er stríð úti í heimi og ekki líður á löngu þar til það teygir sig alla leið til Íslands – með góðu og illu.
Þríleikur Guðrúnar Helgadóttur um þessa skrautlegu fjölskyldu hefur notið gríðarlegra vinsælda frá því bækurnar komu fyrst út. Hér birtast allar sögurnar í glæsilegri stórbók með myndum eftir Sigrúnu Eldjárn.
Guðrún Helgadóttir fæddist í Hafnarfirði 1935 og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Fyrsta bók hennar, Jón Oddur og Jón Bjarni, kom út 1974 og hefur hún upp frá því verið einn vinsælasti og virtasti barnabókahöfundur Íslands. Guðrún hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin, Barnabókaverðlaun skólamálaráðs Reykjavíkur og Bókaverðlaun barnanna, auk Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu.
„Guðrún Helgadóttir er Astrid Lindgren Íslands og bækur hennar jafnmannbætandi og sagnameistarans sænska ... einstaklega eiguleg.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun