Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Höfundur Sóley Dröfn Davíðsdóttir

[removed]

Ertu í stöðugri baráttu við aukakílóin? Sveiflastu milli þess að halda í við þig og missa tökin á mataræðinu? Fyllistu vonleysi þegar þú ferð aftur í sama farið?

Fjölmargir eru í þessum sporum þrátt fyrir dugnað og löngun til að grennast. Í samfélaginu er hvatt til síaukinnar neyslu sem kemur sér illa því ásóknin í orkuríka fæðu er okkur eðlislæg. Þessi þörf magnast þegar við neitum okkur um mat í þeim tilgangi að grennast.

Með hugrænni atferlismeðferð má rjúfa vítahring megrunar og stjórnleysis með því að tileinka sér hugarfar og venjur sem markast af skilningi á þörfum líkamans. Það stuðlar að betri þyngdarstjórn, meiri vellíðan og sátt við eigin líkama. Hugarfarið er gleymda vopnið í baráttunni en jafnframt það öflugasta.

Sóley Dröfn Davíðsdóttir er forstöðusálfræðingur Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Hún hefur lokið sérnámi í hugrænni atferlismeðferð og er með sérfræðingsviðurkenningu í klínískri sálfræði. Hún hefur áður sent frá sér bækurnarNáðu tökum á kvíða, fælni og áhyggjum,Náðu tökum á félagskvíðaogNáðu tökum á þunglyndi.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun