Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Simona Ahrnstedt

Dessie og Sam voru brjálæðislega ástfangin þegar þau voru ung. En óvænt svik urðu til þess að ástin slokknaði og þau hurfu hvort í sína áttina. Fimmtán árum síðar starfar Dessie sem lífvörður eftir að hafa tekið þátt í hernaði í fremstu víglínu á átakasvæðum víða um heim. Út á við virðist henni ganga flest í haginn en hún geymir innra með sér leyndarmál sem getur kollvarpað lífi hennar. Sam var fátækur innflytjandi en byggði upp risastórt hótelveldi eftir aðskilnaðinn frá Dessie. Dag einn berast honum líflátshótanir og hann ákveður að ráða sér lífvörð. Örlögin haga því svo til að það er Dessie. Undireins og þau hittast aftur verður þeim ljóst hvað er í húfi – hjartað er að veði. Feelgoodfredag-verðlaunin 2020 sem ljúflestrarbók ársins í Svíþjóð. Tilnefnd til sænsku Storytel-verðlaunanna 2020. Sænska ástarsögudrottningin og femínistinn Simona Ahrnstedt hefur slegið rækilega í gegn víða um heim með hispurslausum bókum sínum.

Teflt á tvær hættur-serían (Aðeins ein nótt, Aðeins eitt leyndarmál og Aðeins ein áhætta) fékk frábærar viðtökur íslenskra lesenda. Með hjartað að veði er þriðja sjálfstæða bókin í seríunni Seiðmagn andstæðnanna en fyrstu tveimur, Allt eða ekkert og Bara aðeins meira, var ekki síður vel tekið. Friðrika Benónýsdottir íslenskaði.
„Ég ELSKA bækur Simonu Ahrnstedt.“ – Marian Keyes
„Ljúflestur í bland við skarpa þjóðfélagsrýni og sannferðuga lýsingu á Svíþjóð samtímans og lostafullar ástarsenur. Snörp samtöl, snjall söguþráður og dramatísk endalok gera þessa bók að rækilegum skemmtilestri.“ – EXPRESSEN
„Ef þú færð eina af bókum Simonu Ahrnstedt í hendur veistu ekki hvað tímanum líður fyrr en þú ert komin á blaðsíðu 300.“ – DAGENS NYHETER