Cuisine System 4200 XL
Fjölhæf matvinnsluvél í frábærri millistærð.
Matvinnsluvélin er einstaklega fjölhæf; sneiðir, rífur, sker, blandar, þeytir, hnoðar og býr til safa.
Skálarnar eru þrjár og passa hver ofan í aðra, þannig er hægt að vinna með mismikið magn en
vélin tekur eftir sem áður minna skápapláss. Stúturinn er extra stór, vélin er einföld og þægileg í notkun.
Matvinnsluvélin er afkastamikil og sterkbyggð með iðnaðarmótor og skálum úr polycarbonate.
Fjölhæf
Magimix matvinnsluvél CS4200 XL er mjög fjölhæf og getur komið í staðinn fyrir allt að fimm önnur
smátæki í eldhúsinu. Vélin er fullkomin til dæmis til þess að rífa gulrætur, sneiða agúrku og tómata,
skera kjöt, blanda súpur og sósur, búa til smoothie og mjólkurhristinga, hnoða brauð og pizzadeig,
þeyta eggjahvítur og rjóma. Magimix matvinnsluvélar eru frábær viðbót í hvaða eldhús sem er.
Einföld í notkun
Notkun matvinnsluvélarinnar er afskaplega einföld. Allri virkni er stjórnað með þremur tökkum
STOP, AUTO og PULSE. Óþarfi er að stilla inn hraða mótors vegna þess að hann aðlagar
sjálfkrafa hraða sinn að því sem er í skálinni. Matreiðslubók með yfir 100 uppskriftum fylgir
vélinni og veitir margvíslegar hugmyndir um dásamlega rétti, allt frá girnilegum kökum að þriggja
rétta kvöldmáltíðum. Allir fylgihlutir mega fara í uppþvottavél og eru þeir geymdir á öruggum
stað í handhægu boxi sem fylgir með matvinnsluvélinni.
3 in 1
Matvinnsluvélin er með þremur sjálfstæðum skálum úr polycarbonate sem gefur möguleika á því
að vinna nokkur mismunandi verk með keðjuverkandi hætti. Stóra skálin er fullkomin fyrir mikið
magn af hráefnum og í hana passar fjöldi fylgihluta. Miðskálin er notuð með rifjárnum til þess að
skera og rífa hráefni. Minnsta skálin með sínum litla hníf hentar fullkomlega fyrir lítið magn af hráefnum.
Sterkbyggð, öflug og hljóðlát
Matvinnsluvélin er framleidd í Frakklandi. Sterkur iðnaðarmótor og aðlagar sjálfur hraða sinn að verkinu.
Matvinnsluvélin er öflug og orkunýtin, auk þess er hún mjög hljóðlát og hefur fengið Quiet Mark verðlaun
því til staðfestingar. Fylgihlutir eru auk þess allir framleiddir í Frakklandi, meðal annars sterkbyggðir Sabatier
hnífar frá Thiers. Magimix matvinnsluvélar eru sterkbyggðar fyrir lengri endingu.
*Ábyrgð miðast við venjulega heimilisnotkun*
Notendaleiðbeiningar
Hönnun og útlit
Litur Mattur og krómaður
Vörulína CS 4200 XL
Stjórnborð 3 takkar: stop, auto og pulse
Afkastageta
Brioche deig 800 gr
Brauðdeig 1,0 kg
Smjördeig 1,2 kg
Súpa / safi 1,3 ltr
Kjöt 1,0 kg
Gulrætur 1,0 kg
Eggjahvítur 6 stk
Skálar
Fjöldi skála 3
Stór skál 3,0 ltr
Miðstærð skál 2,6 ltr
Lítil skál 1,2 ltr
Tækni
3 in 1 – matvinnsluvél – 3 misstórar skálar sem ganga hver inn í aðra.
Sparar tíma og pláss. Þrjár skálar gera þér kleift
að vinna nokkra mismunandi hluti hvern á eftir öðrum.
Þægindi notanda
XL stútur – stærri stútur til fyrir matvælin
Púls takki - já
Lok með millilítramáli já
Gæði
Professional kolalaus motor - Hljóðlátur professional motor sem aðalgar
sjálfvirkt hraða sinn að verkinu.
Skálar út polycarbonate – sterkt efni sem meðal annars er notað í glugga
á flugvélum.
Hráefni skála – 0% BPA
Tæknilegar upplýsingar
Hæð 42,5 cm
Breidd 21 cm
Dýpt 26 cm
Heildarafl 950 W
Spenna 220 – 230 V
Þyngd 11 kg
Fylgihlutir
Stór hnífur 1
Hnoðari 1
Þeytari 1
Rifjárn 2 og 4 mm
Sneiðjárn 2 og 4 mm
Lítill hnífur 1
Spaði til að þrífa 1
Blendermix – Fínni og betri blöndun: t.d fyrir súpur, smoothie og pönnukökudeig.
Notast í stóra skál.
Geymsluskál – Þægilegt geymslubox sem geymir flesta aukahluti m.a hnífa,
rifjárn, hnoðara og þeytara.
Uppskriftabók Já
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun